Thursday, May 10, 2007

best thursday ever

trespassing, drunk people and singapore sling.
Kom heim fyrir nokkru síðan af tónleikum Singapore Sling í Hressingarskálanum.
Ég er ekki nógu góður rithöfundur til að lýsa því hvernig kúlið fossaði af sviðinu í mjúkum, seiðandi gusum. En sögukennaraneminn fann það allavega og dansaði líkt og enginn væri morgundagurinn. Svölustu tónleikar í himingeiminum.... sem ég hef séð allavega.
Fékk inspæreitjon kast þegar ég kom heim og gerði redo af upphafsverki bloggsíðunnar sem má finna í fyrsta blogginu "deadtown" nema núna gerði ég hana með blýant, hvítum lit, bleki og kveikjara á strigaspjald. Fíla hana, ætlaði að setja hana hingað inn en skanninn er frammi og er hávær og allir farnir að sofa.
Þið sjáið það bráðum bara. Á meðan þá skuluði ýta á eftirfarandi link og horfa, því ég má nú ekki gera heilt blogg með ógeðslega mikið af leiðinlegum texta með engri mynd.
Ýta hérna já jájá til að sjá sköllteikn


fariði svo að hlusta á singapore sling

No comments: